Dagsferð til Cieza
Kæru FHS félagar og aðrir velunnarar félagsins á Costa Blanca ströndinni. Nú er komið að næstu ferð hjá Ferðaklúbbi FHS.
Fimmtudaginn 12. mars 2026 n.k. fer Ferðaklúbbur FHS í skoðunarferð um hinn fallega Valle de Ricote (Ricote dalinn) sem stundum er nefndur Leynidalurinn. Þennan dal var ekki vitað mikið um á miðöldum og er sá staður á Spáni þar sem Márarnir lögðu fyrst undir sig á 6. öld. Þar stofnuðu þeir marga bæi og hófu miklar áveituframkvæmdir, gerðu áveituskurði og notuðu áveituhjól til að færa vatnið upp í móti. Við skoðum þennan fallega dal og bæinn ABARÁN, þar sem sjáum 12 metra hátt áveituvatnshjól.
Hádegismatur verður snæddur á glæsilegu veitingahúsi, La Parraletta, fyrir utan Abarán – Fjögurra rétta málsverður með víni er innifalinn í verðinu.
Eftir matinn förum við til CIEZA og HORNO þar sem við stoppum um stund til að dást að útsýninu yfir hundruði hektara af blómstandi ferskju, peru og aprikósutrjám, sem blómstra á þessum tíma hvítum og bleikum blómum.



Fararstjórar eru Jón Haukur Sigurðsson og Ásdís Sigurðardóttir.
Rútan fer kl. 9:15 frá stóra planinu hjá La Zenia mollinu og 9:30 frá lögreglustöðinni í Torrevieja.
Hægt að panta miða hjá Jóni Hauk fararstjóra í síma +34 688 44 3609.
Verð á mann í ferðina eru 65€.
Miðar afhentir á hittingi FHS föstudaginn 6. mars 2026 á IVY bar.
