BUSOT – CANELOBRE HELLARNIR

Kæru FHS félagar og aðrir velunnarar félagsins á Costa Blanca ströndinni. Nú er komið að fjórðu ferð Ferðaklúbbs FHS.

Þriðjudaginn 24. mars 2026 nk. fer ferðaklúbbur FHS í skoðunarferð til hins heillandi og sögufræga þorps, BUSOT sem er staðsett við rætur Sierra del Cabeqo d´Or fjallanna, þekkt fyrir friðsælt andrúmsloft. Söguleg þorpsmiðstöð gamla bæjarsvæðis BUSOT er með þröngar, hlykkjóttar götur sem eru dæmigerðar fyrir hefðbundin spænsk þorp. Við sjáum sögulegar byggingar, staðbundnar verslanir, nokkur lítil torg og tónlistarsafn með hljóðfærum aftur í aldir. Einnig vekur San Lorenzo kirkjan alltaf athygli fyrir fallega hönnun.

Hádegismatur verður á glæsilegu veitingahúsi bæjarins þar sem boðið er uppá 2ja rétta hádegismat með vatni og víni. (Innifalið í verðinu).

Eftir matinn förum við í Canelobre þar sem við munum njóta 40–45 mínútna leiðsagnar í gegnum hellana. Gott er að taka með sér létta peysu þar sem svalara er inni í hellunum en úti, sérstaklega á sólardögum.

Fararstjórar eru Jón Haukur Sigurðsson og Ásdís Sigurðardóttir.

Rútan fer kl. 9:15 frá stóra planinu hjá La Zenia mollinu,
kl. 9:30 frá lögreglustöðinni Torrevieja og
kl. 10:00 frá La Marina (LIDL)

Verð á mann í ferðina er 65€

og verða miðar afhentir og greiddir á hittingi FHS næsta föstudag, 20. mars á IVY bar.

Deila: