DAGSFERÐ TIL CIEZA
ÞÁ ER KOMIÐ AÐ NÆSTU FERÐAUPPLIFUN OKKAR SAMAN!
DAGSFERÐIR TIL BLÓMSTRANDI CIEZA
MEÐ LEIÐSÖGUMANNI OG HÁDEGISMAT
ÞRIÐJUDAGINN 05. MARS 2024 – U P P S E L T
ÖNNUR FERÐ MIÐVIKUDAGINN 06. MARS 2024
Taktu þátt í þessari frábæru dagsferð og upplifðu þessa undurfögru náttúruperlu!
Við stígum um borð í rútuna sem fer með okkur til Cieza, þar sem sérfræðingur á svæðinu bíður okkar og fylgir okkur, útskýrir leyndardóma ávaxtatrjána svo og margra spennandi staða á svæðinu.
Við förum á útsýnisstaði þaðan sem við getum skoðað fegurð akranna í fullum skrúða.
Eftir þessa upplifun munum við fara á veitingastaðinn San Agustín í Jumilla, þar sem við njótum þriggja rétta matseðils með vínglasi og vatni en Jumilla er þekkt fyrir mikla vínrækt.
Blómstrandi Cieza er stórkostlegt náttúru undur sem gerist á hverju ári í febrúar og mars. Fjöldi blóma tegunda mynda landslag með stærstu litasamsetningu blóma í heiminum.
Sjónarspil fyrir skynfæri gesta sem vilja upplifa blómstrandi Cieza er býður upp á stórbrotna fegurð og myndefni.
Lagt verður af stað:
- Frá La Marina (við verslun Lidl) kl. 8:30
- Frá Torrevieja (lögreglustöð) kl. 09:00
- Frá La Zenía mollinu (stóra planið gegnt Decathlon) kl. 09:20
Verð: 60 evrur á mann
Hádegismatur, 1 glas af víni og vatn innifalið í verði
SALA Í FERÐINA ER HAFIN!!
Miða má sækja á IVY Bar and Restaurant, C. Clementina, 03189, La Florida alla föstudaga kl. 14–16.