Dagsferð til Guadalest
Nú er komið að fyrstu dagsferð Ferðaklúbbs FHS starfsárið 2026.
Fimmtudaginn 26. febrúar nk. fer ferðaklúbbur FHS í skoðunarferð til Guadalest og á mótorhjóla- og smábílasafn.
Fararstjórar eru Jón Haukur Sigurðsson og Ásdís Sigurðardóttir
El Castel Guadalest eða bara Guadalest, er smábær í Valensíuhéraði og er í fjöllunum fyrir ofan Benidorm. Guadalest hefur oft verið valið eitt af fallegustu þorpum Spánar og er stórkostlegt útsýni frá bænum.

Miðaldakastalinn var upphaflega byggður af Márum á 11 öld og þaðan gátu Márarnir stjórnað allri umferð um dalinn sem var þjóðleið frá sjó og inn í landið. Á 13 öld eftir að kristnir náðu völdum á svæðinu var kastalinn og þorpið sett undir stjórn konungsins í Valensía. Í dag eru aðeins hlutar kastalans uppistandandi.

Í Guadalest eru margar minjagripabúðir, margir veitingastaðir og einnig mörg söfn sem sýna margskonar „miniature“ safngripi sem áhugavert er að skoða. Þar er einnig salt- og piparbaukasafnið sem er m eð 20.000 salt og piparbauka.
Þá heimsækjum við einnig líka mótorhjólasafnið sem er rétt hjá þorpinu þar sem eru til sýnis yfir 100 gerðir af mótorhjólum og smábílum í fullkomnu standi. Aðgangur er innifalinn í ferðinni.






Lagt verður af stað:
- Frá La Zenía mollinu (stóra planið gegnt Decathlon) kl. 09:30
- Frá Torrevieja (lögreglustöð) kl. 09:45
