Framboð 2025 – Már

Ég heiti Már Elíson, fyrrverandi verslunar -og tónlistarmaður, fæddur í Reykjavík.
Eftir rúmlega 50 ára verslunarmennsku og jafnlengi við tónlist í hjáverkum, – ákváðum ég og kona mín, Fríða Einars, að söðla um, verandi á réttum aldri og flytja alfarið til Spánar í hús okkar sem við höfum átt þar alllengi. –
Árið 1983 fór ég í tungumálaháskóla í Santander á Norður Spáni þar sem ég lauk við nám í spænsku, sögu Spánar og listir, verandi í góðum höndum á kennurum frá Madrid.
Einnig vorum við hjónin með veitingarekstur á Benidorm til skamms tíma sem gekk vel og nýttist þá vel kunnáttan og þekkingin á málinu, sem og að kynnast spænskri menningu og þjóðlífi Spánar nánar.
Tungumálið hefur einnig nýst mér vel; t.d. sem farastjóri, – í suðurhöfum fyrir Ingólf Guðbrandsson heitinn og sem leiðsögumaður á Íslandi með hópa víðsvegar frá Spáni, og almennt hér á suðurströnd Spánar þar sem við búum.
Hef verið virkur félagi í Félagi húseigenda á Spáni, FHS, meira og minna alla tíð og sérstaklega frá árinu 2008 og er mér mikill heiður að finna mikinn meðbyr með mínum störfum fyrir félagsmenn og almennt hér á Spáni sem öryggis -og þjónustufulltrúi félagsins frá árinu 2020.
Býð ég mig því fram til formanns FHS þar sem ég tel mig geta haldið áfram þeirri vegferð og þeim meðbyr sem félagið finnur fyrir í dag ásamt því frábæra fólki sem situr í stjórn FHS í dag.
Virðingarfyllst,
Spáni, 12.febrúar 2025
