Heimasíðan www.fhs.is er rekin af Félagi húseigenda á Spáni og gilda þessir notendaskilmálar um notkun á vefnum www.fhs.is og öllum tengdum lénum og undirsíðum. Með því að ljúka innskráningu staðfestir þú að þú hafir skilið skilmála þessa og samþykkir þá.
FHS áskilur sér rétt til að loka eða rifta þjónustu sem félagið veitir, án þess að sá sem notar þjónustuna eða þriðji aðili öðlist með því rétt til skaðabóta.
Notandi fær notendanafn og lykilorð við nýskráningu. Við innskráningu á síðuna www.fhs.is samþykkir notandi skilmála þessa. Notandi ber fulla ábyrgð á því sem það notendanafn gerir á www.fhs.is eða tengdum lénum.
Notandi ber fulla ábyrgð á öllum skrifum, myndbirtingum, myndbandabirtingum og öðru efni sem hann birtir á síðu félagsins.
FHS ber ekki ábyrgð á að þjónustan standist ákveðnar kröfur notanda eða að hún sé ávallt virk.
FHS ber ekki ábyrgð á þeim gögnum sem glatast.
Auglýsingasendingar á netföng félagsmanna eru óheimilar í gegnum síðu FHS.
Notandi samþykkir að miðla ekki ólöglegu efni eða nokkru öðru er veldur skaða. Ennfremur að hafa ekki í hótunum, áreita eða særa með skrifum sínum. Stjórn FHS hefur úrslitavald komi upp ágreiningur varðandi það.
Ef notandi gerist brotlegur við reglur þessar verður aðgangi hans að heimasíðu FHS, www.fhs.is, lokað.