Boðun til aðalfundar Félags húseigenda á Spáni (FHS)
Aðalfundur Félags húseigenda á Spáni verður haldinn föstudaginn 13. mars 2026 kl. 14:00 á veitingastaðnum Los Cucalos, C. Águila Imperial, 1, 03189 Orihuela Costa. Til að sitja fundinn þarf félagsgjald 2026 að vera greitt.
Dagskrá aðalfundarins er:
- Kosning fundarstjóra og fundarritara eftir tilnefningu stjórnar.
- Skýrsla stjórnar.
- Lagðir fram endurskoðaðir reikningar félagsins.
- Ákvörðun um félagsgjald.
- Tillögur til lagabreytinga. Sjá tillögur í viðfestu PDF-skjali.
- Kosning formanns.
- Kosning tveggja manna í aðalstjórn og eins varamanns í stjórn (Kjörtími stjórnarmanna breytist ef framlagðar lagabreytingar eru samþykktar á fundinum).
- Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga.
- Önnur mál.
Vonumst til að sjá sem flesta félagsmenn á fundinum.
Virðingarfyllst,
Stjórn Félags húseigenda á Spáni
