Aðalfundur FHS 2026

Aðalfundur Félags húseigenda á Spáni verður haldinn föstudaginn 13. mars 2026 kl. 14:00 á veitingastaðnum Los Cucalos, C. Águila Imperial, 1, 03189 Orihuela Costa.

Til að sitja fundinn þarf félagsgjald 2026 að vera greitt.

Dagskrá aðalfundarins er:

  1. Kosning fundarstjóra og fundarritara eftir tilnefningu stjórnar.
  2. Skýrsla stjórnar.
  3. Lagðir fram endurskoðaðir reikningar félagsins.
  4. Ákvörðun um félagsgjald.
  5. Tillögur til lagabreytinga. Sjá tillögur í viðfestu PDF-skjali.
  6. Kosning formanns. (Sér kosning formanns fellur niður ef tillögur til lagabreytinga ná fram að ganga).
  7. Kosning tveggja manna í aðalstjórn og eins varamanns í stjórn (Kjörtími stjórnarmanna breytist ef framlagðar lagabreytingar eru samþykktar á fundinum).
  8. Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga.
  9. Önnur mál.

Vonumst til að sjá sem flesta félagsmenn á fundinum.

Virðingarfyllst,
Stjórn Félags húseigenda á Spáni

Tillaga til lagabreytinga (PDF)

Deila: