Aðalfundur & Grísaveisla

Aðalfundur félagsins verður laugardaginn 16.febrúar kl 13:00 í Akóges salnum Lágmúla 4, 3 hæð.  Hefðbundin dagskrá:

  • Kosning fundarstjóra og fundarritara
  • Skýrsla stjórnar
  • Lagðir fram endurskoðaðir ársreikningar félagsins
  • Umræður um skýrslu stjórnar og ársreikninga
  • Kosning formanns
  • Kosning fjögurra manna í aðalstjórn
  • Kosning tveggja manna í varastjórn
  • Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga
  • Tekin ákvörðun um árgjald í félaginu
  • Lagabreytingar
  • Önnur mál

Við hvetjum áhugasama um að bjóða sig fram til stjórnar og hafa þannig bein áhrif á vöxt og þróun félagsins.  Samkvæmt lögum félagsins þarf að framboð að berast stjórn eigi síðar en 7 dögum fyrir aðalfund á netfangið umsjon@beta.turteldufur.is

Hin árlega Grísaveisla verður síðar sama dag á sama stað og er skemmtinefnd að störfum við undirbúning og skipulag.

Þessir viðburðir báðir verða kynntir betur fljótlega hér á heimasíðunni, á facebook og fjölpósti sem sendur verður á félagsmenn.

 

Deila: