Borgirnar sem halda sæti sínu á sumaráætlun Icelandair….. – turisti.is
Ágætu FHS félagar og aðrir íslendingar á Spáni
Hér er áhugaverð lesning tekin frá turisti.is varðandi nýbirta flugáætlun Icelandair.
Þess ber að gæta, að þó Alicante sé ekki á þessum lista um borgarferðir, þá flýgur Icelandair fyrir VITA ferðir til Alicante.
Þrátt fyrir óvissuástandi þá birti Icelandair í dag lista yfir
þær borgir sem þotur félagsins munu fljúga til næsta sumar.
Icelandair gerir ráð fyrir áætlunarflugi til tuttugu og tveggja áfangastaða í Evrópu næsta sumar og tíu í Norður-Ameríku. Á nýliðnu sumri þá datt nærri allt Ameríkuflug upp fyrir og ferðirnar til Evrópu voru mun færri en gert var ráð fyrir vegna Covid-19 heimsfaraldursins.
Næsta sumar bætist einn áfangastaður við leiðakerfi Icelandair og það er spænska eyjan Tenerife. Flogið verður þangað á laugardögum.
Hin nýja sumaráætlun gerir þó ekki ráð fyrir neinum ferðum til Dusseldorf í Þýskalandi og Barcelona á Spáni. Aðrir áfangastaðir flugfélagsins í Evrópu eru á áætluninni.
Í Norður-Ameríku er breytingin meiri því þotur Icelandair munu ekki fljúga til Philadelphia, Portland, Anchorage í Bandaríkjunum né Edmonton í Kanada.
Áfangastaðir Icelandair í Evrópu sumarið 2021:
Amsterdam, Bergen, Berlín, Billund, Brussel, Dublin, Frankfurt, Genf, Glasgow, Hamborg, Helsinki, Kaupmannahöfn, London, Madríd, Manchester, Mílanó, Munchen, Ósló, París, Stokkhólmur, Tenerife og Zurich.
Áfangastaðir Icelandair í Norður-Ameríku næsta sumar verða:
Boston, Chicago, Denver, Minneapolis, New York, Seattle og Washington í Bandaríkjunum. Toronto, Vancouver og Montreal í Kanada.
Höfundur
Kristján Sigurjónsson