Breyting í varastjórn félagsins.

Við tilkynnum eftirfarandi breytingu í varastjórn félagsins sem tekur gildi frá og með deginum í dag:

Eiríkur Ingi Haraldsson hefur sagt sig úr varastjórn af persónumlegum ástæðum.  Eiríkur kom inn í stjórn félagsins 2014 og hefur verið samfellt í stjórn síðan og gengt ýmsum hlutverkum fyrir félagið.  Við þökkum Eiríki fyrir gott samstarf, tíma og vinnu sem hann lagt af mörkum fyrir okkur undanfarin ár og óskum honum velfarnaðar.

Í morgun leitaði formaður til Karls Kristjáns Hafsteins Guðmundssar um að taka sæti Eiríks við stjórnarborðið og hefur Karl samþykkt það.  Við vorum áður búin að vera í sambandi við Karl út af ýmsum spennandi sérverkefnum sem sagt hefur verið frá áður.  Karl mun nú starfa með okkur í stjórn fram að næsta aðlfundi og þá sækja umboð frá aðalfundi til áframhaldandi stjórnunarstarfa.  Við bjóðum Karl velkominn við stjórnarborðið og hlökkum til samstarfs við hann.

 

 

Deila: