Dagsferð til Alcalá Del Jucár
Dagsferð til Alcalá Del Jucár þriðjudaginn 10. september 2024.
Hið ólýsanlega landslag er samanstendur af Jucár-gljúfrinu er einstaklega hrífandi. Þorpið Alcalá Del Jucár er staðsett á kletti á botni árinnar Segura.
Hellahúsin í hlíðinni eru ótrúleg sjón þar sem þau halla upp í átt að kastalanum á toppi gljúfursins sem býður upp á víðáttumikið útsýni yfir þorpið.
Eftir stuttan frjálsan tíma í þorpinu Alcala Del Jucar höldum við í stutta en hrífandi ferð upp dalinn á heillandi El Mirador veitingastaðinn þar sem við njótum dýrindis 3 rétta máltíðar (vín og vatn er innifalið). El Mirador þýðir (útsýnis staður). Þetta er án efa eitt stærsta aðdráttarafl veitingahússins (sem og fjöldi óvenjulegra gæludýra).
Útsýnið yfir gilið og þorpið er kraftmikið, hrífandi og fullkomnar máltíðina.
Eftir frábæra máltíð okkar förum við aftur í þorpið. Fyrir þá sem fara gangandi undir okkar handleiðslu, liggur leiðin í hinn sérkennilega “Djöflahelli”! Þessi hellir er bókstaflega í eigu “djöfulsins”!
“Djöfullinn” er vingjarnlegur en sérstakur persónuleiki að nafni Juan Jose Martinez, sem á árum áður var frægur spænskur nautabani er gekk undir nautabardaga nafninu El Diablo (Djöfullinn).
Juan Jose veit fátt skemmtilegra en að segja frá nautabanaferli sínum og sitja fyrir á myndum.
Athugið að hellarnir rukka lítinn aðgangseyri sem er ekki innifalið í verði ferðarinnar.
Lagt verður af stað:
- Frá La Marina (við verslun Lidl) kl. 8:30
- Frá Torrevieja (lögreglustöð) kl. 09:00
- Frá La Zenía mollinu (stóra planið gegnt Decathlon) kl. 09:20
ATHUGIÐ: Þorpið er staðsett í aflíðandi hæð og því eru ekki öll svæði (þar með talið hellarnir) aðgengileg fólki sem á erfitt með gang.
Verð: 85 evrur á mann
Hádegismatur, vín og vatn innifalið í verði
SALA Í FERÐINA ER HAFIN!!
Bókið ferðina hjá Kristni í síma +354-787-8809
Email: kr********@gm***.com
AÐRAR FERÐIR Á TEIKNIBORÐINU:
- Dagsferðir og 3–4 daga ferðir: Mánaðarlega, október 2024 – apríl 2025
- Apríl 2025, Indókína, Víetnam, Kambódía, Tailand
- Maí 2025, Kúba
- September 2025, Andalúsía
- Október 2025, Norður-Spánn, frá San Sebastian til Vigo
- Desember 2025, Aðventan í Malaga