Eina eyðimörkin í Evrópu

Eina eyðimörkin í Evrópu og „litla Hollywood“ hennar.

Kæru FHS félagar og aðrir velunnarar félagsins á Spáni. Í þetta sinn skjótumst við með ykkur á suður ströndina – í átt til ALMERÍU.

Þó að það séu ýmis þurr svæði á Spáni og í Evrópu, er sannleikurinn sá að meginland Evrópu er aðeins talin hafa eina eyðimörk sem slíka um allt yfirráðasvæði sitt. 280 ferkílómetra staður sem, auk þess að standa upp úr fyrir þann eiginleika, – er þekktur fyrir að hafa verið vettvangur stórverka sjöundu listarinnar, kvikmyndalistarinnar.


Eina og stærsta eyðimörk Evrópu. | Shutterstock

Hin einstaka eyðimörk í Evrópu sem er sögusvið kvikmynda.

Rigningar eru af skornum skammti á þessu svæði en eru þá yfirleitt úrhellisrignar, mikill hiti og meira en 3.000 árlegar sólskinsstundir og að hleypa lífi í þurran og óvenjulegan sjóndeildarhring milli Filabres og Alhamilla fjallanna.


Tabernas eyðimörkin. | Shutterstock

Aðeins 30 kílómetrar skilja höfuðborgina Almería frá þessum kvikmyndastað, og heldur betur sagt, því síðan á sjöunda áratugnum hefur Tabernas-eyðimörkin orðið hið fullkomna svið fjölda kvikmynda- og auglýsingamynda.

Það er þess virði að vekja athygli á hinum alþjóðlegu þekktu vestrænu leiknu kvikmyndum, þar sem bæði virtir leikarar og frábærir leikstjórar úr kvikmyndaheiminum hafa farið í gegnum þetta sláandi sérstaka rými sem er orðið þekkt sem „European Hollywood“, eða hin Evrópska Hollywood.

Clint Eastwood, Steven Spielberg, Sergio Leone, Harrison Ford, Arnold Schwarzenegger, Elizabeth Taylor, Peter O’Toole og Sophia Loren eru nokkur af þeim andlitum sem þú hefur líklega séð á hvíta tjaldinu og hafa líka gengið í gegnum þetta Almeríu ævintýri.


Sviðsmynd MiniHollywood. | Shutterstock

Kvikmyndir sem gerast í gamla vestrinu eins og The Good, the Bad and the Ugly, A Fistful of Dollars og Death Had a Price voru teknar upp hér, og það gera líka aðrar, eins og Indiana Jones and the Last Crusade, Cleopatra og Lawrence of Arabia. Nafnalisti á háu stigi, án efa.

Reyndar er það gildi sem þetta svæði hefur haft að Evrópska kvikmyndaakademían veitti Tabernas-eyðimörkinni einróma viðurkenninguna „Treasure of European Cinematographic Culture“ árið 2020.

Í dag er það áfram notað til að taka upp auglýsingar, stuttmyndir, tónlistarmyndbönd og jafnvel kvikmyndir eða seríur. Að teknu tilliti til þessa eru meira en 300 myndir sem teknar hafa verið á þessum slóðum frá því seint á fimmta áratugnum til dagsins í dag.

Kvikmyndaaðdáendur sem heimsækja þennan stað verða að stansa skilyrðislaust í Oasys, Mini Hollywood, – skemmtigarði sem samanstendur af fjölmörgum kvikmyndasettum, innblásnum af villta vestrinu, svo sem salerni, skrifstofu sýslumanns, símaskrifstofu, banka, jarðarförum, heimilum. Allt litlar senur sem umlykja þig og flytja þig til annars tíma.

Auk þess eru tvö söfn þar sem hægt er að sjá hluti sem tengjast kvikmyndatökunni sem þar fór fram. Einnig má sjá vatnagarði, lítinn dýragarð, þó með flerum en 800 dýrum, fjölbreytt úrval veitingastaða, sundlauga og aðra fræðslustarfsemi sem mun gleðja börn og aldraða, eins og sýninguna sem líkir eftir andrúmslofti þess tíma á bæjartorginu og „Can-can-sýningu“, sem var algeng á stöðum í vestrum Bandaríkjanna á 19. öld.

Hvað má að sjá í kringum Tabernas eyðimörkina ?

Auk þess að vera sögusvið fyrir skáldaðar sögur geymir þetta svæði einnig mikla sögu og raunsögu. Tabernas kastali er 11. aldar virki sem var reist á tímum arabískra yfirráða og er staðsett á hæð með útsýni yfir samnefndan bæ, Tabernas. Þetta er einn fallegasti bærinn í Almeríu sem þú getur einnig heimsótt, og þar er „Hermitage of San Sebastián“ staðsett, musteri byggt á 13. og 14. öld og var upphaflega notað sem samkunduhús.


Kastali Tabernas. | Shutterstock

Ef þú elskar göngur, þá eru margar leiðir sem bjóða upp á mismunandi erfiðleikastig og kortlagðar ferðaáætlanir besta leiðin til að njóta þessarar forvitnilegu náttúru. Ef þú þorir og með mikilli heppni getur þú rekist á tegundir (bæði gróðurs og dýra) sem eru einstakar á jörðinni. „Rauðhalaeðla“, „kóngssveifla“, „einstakur klettaþröstur“ og refir eru meðal þeirra dýra sem þar er að finna.

Höfundur ; Claudia Escribano
Myndir : Shutterstock

Heimild : espanafascinante.com

Þýtt, endursagt og staðfært :

Már Elíson, 
Öryggis -og þjónustufulltrúi FHS
félags húseigenda á Spáni  –  fhs.is

Deila: