Fæðingarsenan með stærstu persónum í heimi
Spænska jólahornið
Kæru FHS félagar og aðrir velunnarar félagsins hér á suðurströnd Spánar.
Spænska jólahornið leitar ekki langt yfir skammt í trúarlegri leit sinni að einhverju merkilegu til handa okkur á aðventunni.
Fæðingarsenan með stærstu persónum í heimi, vottuð af „Guinness Book of Records“ , er á Spáni. Nánar tiltekið í borginni Alicante.
Sá sem ber ábyrgð á þessu umfangsmikla verki er borgarstjórnin sjálf, sem til að framkvæma það hefur fengið þrjá listamenn sem sérhæfa sig í þessum stóru myndum sem vísa til hinna frægu „fallas“ í Valencia. – Það er þess virði að fara nær smáatriðum þess.
Sumar fígúrurnar í fæðingarmynd Alicante ná næstum 20 metrum á hæð. Aðalverk þess, það sem samanstendur af fjölskyldu Jesú, Maríu og Jósefs, er hannað af José Manuel García Esquiva, þekktum sem „Pachi“. – Þessi fæðingarsena er innblásin af módernisma Alicante og er blanda af mynd, ljósi og hljóði.
Fæðingarsenan í Alicante, sem var vígð í byrjun desember nú í ár, lætur hvern sem er líða snortinn. Jesúbarnið er meira en 3 metrar á hæð, María mey nær 10 metrum og Jósef er um 18.
Það sem ætlað var að vera tákn Jesúbarnsins, með orðum listamannsins og eins og fram kemur á heimasíðu Alicante borgarstjórnar, er “gleðileg og náin tjáning barna.”
Hjá meyjunni þýddi það, að miklu leyti, “tjáningar blíðu og viðurkenningar í garð barnaguðsins”.
Einnig hefur verið bætt við myndum vitringanna þriggja: Melchior, sem er 11 metrar á hæð, Gaspar, sem er meira en 15 metrar á hæð, og Baltasar, sem nær 16 metrum. – Á göngu um Alicante getum við líka fundið sex engla af mikilli stærð, – verk eftir Javier Gómez Morollón og Lorenzo Santana.
Það verður alltaf glæsilegra með hverju árinu.
Í spænsku landafræðinni getur ferðamaðurinn fundið fjölmargar fæðingarsenur og staði sem eru þess virði að heimsækja ef þú ert jólaelskandi. Í Xàtiva í Valencia, án þess að fara lengra, muntu uppgötva hina svokölluðu „Monumental Nativity Scene of Xàtiva“, sem þekur yfir 1.600 fermetra svæði.
Gleðilega jólahátíð !
Heimild : https://espanafascinante.com/cultura-espanola/belen-figuras-grandes-mundo/
Þýtt, endursagt og staðfært :
Már Elíson
Öryggis- og þjónustufulltrúi
FHS, félags húseigenda á Spáni – fhs.is