Ferð til Katalóníu – UPPSELT!
Ferð 9. til 15. nóvember (6 nætur – 7 dagar) til Katalóníu
Ferðatilhögun :
Við ökum til Lloret de Mar sem er strandbær fyrir rétt norðan við Barcelona og gistum þar í þrjár nætur á fjögurra stjörnu hóteli. Förum í dagsferð til Giróna og borgin skoðuð með leiðsögn. Daginn eftir förum við í ferð til bæarins Figures sem er fæðingarstaður listmálarans Salvador Dali þar sem við skoðum listasafnið hans. Á degi 4 ökum við til Barcelona og verðum þar í þrjár nætur á fjögurra stjörnu hóteli. Dagurinn hefst á skoðunarferð um Barcelona með leiðsögn og heimsækjum hina heimsfrægu Dómkirkju la Sagrada Familia sem er hönnuð af hinum fræga Gaudi. Á degi 5 förum við til hins fræga klausturs í Montserrat, sem frægt er fyrir fegurð sína og einstaks fjallaumhverfis, frjáls tími seinnipartinn í Barcelona.









Dagur 6 er frjáls tími í Barcelona og má benda fólki á að heimsækja t.d. Gotneska hverfið, Picasso safnið, Römbluna, Basilica de Santa Maria del Mar, Palau Guell, og frægu Gaudi húsin Casa Batello, La Padera, Casa Vicens og Parc Guell. Einnig er hægt fyrir knattspyrnuaðdáendur að heimsækja Camp Nou, heimavöll Barcelona liðsins.
Innifalið í ferðinni er morgunverður og kvöldverður alla dagana, gisting á fjögurra stjörnu hótelum, rúta og leiðsögn og aðgangur í Museo Dali, la Sagrada Familia og klaustrið í Montserrat. Dagur 7 ekið aftir til baka til Torrevieja.
Verð í ferðina er 1.260 Evrur á mann miðað við tveggja manna herbergi.
Nánari upplýsingar og skráning í ferðina er hjá fararstjóranum Jón Haukur Sigurðsson í síma 34 688 44 3609 og í tölvupósti jonhsig4949@gmail.com
Þar sem um takmarkað pláss er að ræða er áhugasömum bent á að panta sem fyrst. Hótelin þurfa að vita með löngum fyrirvara um fjölda farþega í ferðinni.
