Þjóðaratkvæðagreiðslan 29. ágúst 2026

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, og Kaja Kallas, utanríkismálastjóri Evrópusambandsins, takast í hendur eftir undirritun yfirlýsingar um samstarf í varnar- og öryggismálum. Þingsályktunartillaga Þorgerðar um framhald aðildarviðræðna við ESB kveður á um þjóðaratkvæðagreiðslu í ágúst.

Þjóðaratkvæðagreiðslan um framhald aðildarviðræðna Íslands við Evrópusambandið var formlega ákveðin þegar tillaga þess efnis var lögð fram og kynnt á Alþingi 6. mars 2026. Tillagan var kynnt af utanríkisráðherra, forsætisráðherra og mennta- og barnamálaráðherra, og hún fól í sér að kosið yrði um málið laugardaginn 29. ágúst 2026.

Íslenskur ríkisborgari á kosningarrétt í 16 ár frá því að hann flytur lögheimili af landinu.

Fyrirvarinn of stuttur?

Hafi kosningarréttur þinn fallið niður án þess að þú hafir kært þig inn á kjörskrá fyrir 1. desember 2025 að þá færðu ekki að kjósa í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst 2026.

Þú getur athugað kosningarrétt þinn hér.

Sértu í þeim sporum að kosningarréttur þinn féll niður fyrir 1. desember 2025 að þá ertu eindregið hvattur til þess að kæra þig inn á kjörskrá til næstu fjögurra ára, fyrst árið 2027. Það verða a.m.k. einar kosningar til Alþingis áður en það þarf að kæra sig aftur inn á kjörskrá fyrir 1. desember 2030.

Opinberar upplýsingar um þjóðaratkvæðagreiðsluna eru hér.

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar vegna þjóðaratvæðagreiðslu þann 29. ágúst 2026 hefst í júlí 2026.

Sendiráðið í Madríd og ræðismenn Íslands á Spáni munu veita nánari upplýsingar um framkvæmd atkvæðagreiðslunnar þegar nær dregur.

Kjósendur þurfa að framvísa persónuskilríkjum við kosninguna.

Kosningavefur landskjörstjórnar.

Deila: