Paracuellos – Flugvallarkrossinn í Madrid

Kæru FHS félagar og vinir hér á Spáni.
Í þessari grein höldum við í flug á söguslóðir til Madrid. Sá sem horfir út um glugga flugvélarinnar við komu eða tekur á loft á Adolfo Suárez Madrid–Barajas, flugvellinum í MADRID, mun sjá risastóran hvítan kross málaðan á hæð rétt við flugbrautina.

Það gefur sumum farþegum óþægilega tilfinningu, þar sem sumir telja að um flugslys sé, eða hafi verið að ræða. Í raun er krossinn tákn fyrir fórnarlömb annars konar harmleiks.

Spænska borgarastyrjöldin, þar sem barist var á milli þjóðernissinna Francisco Franco hershöfðingja og vinstrisinnaðra repúblikana, stóð frá 1936 til 1939. Báðir aðilar frömdu alvarleg grimmdarverk í stríðinu, og eitt það versta sem varð þekkt sem „Paracuellos Massacres“. eða Paracuellos fjöldamorðin. Í orrustunni við Madrid árið 1936 réðust þjóðernissinnar á almenna borgara með loftárásum þýskra sprengjuflugvéla.

Á sama tíma fangelsuðu repúblikanar (studdir af Rússum) þúsundir pólitískra fanga í Madríd, þar á meðal óbreytta borgara, kaþólska presta og hermenn. Þegar hermenn þjóðernissinna nálguðust, fundu repúblikanar fyrir þrýstingi um að losa sig við óvini sína. Lausn þeirra voru fjöldaaftökur.

Frá því snemma morguns 7. nóvember 1936 var föngum tilkynnt að þeir yrðu látnir lausir úr fangelsi í hópum. Þeir voru fluttir á akrana nálægt „Paracuellos del Jarama,“ þar sem þeir voru skotnir og grafnir í fjöldagröfum. Aftökurnar héldu áfram til 4. desember.

Ekki er vitað hversu margir Spánverjar voru drepnir af hendi samlanda sinna. Fjöldi er mjög mismunandi meðal sagnfræðinga. Sumir segja að það hafi verið þúsund samtals, segja aðrir að það hafi verið um þúsund fyrstu tvo dagana. – Flestar tölur eru á bilinu 2.000 til 5.000.

Árið 1977 setti tímaritið El Alcazar töluna í 12.000. Sama ár innihélt „Matanzas en el Madrid Republicano“ eftir César Vidal lista yfir 12.000 nöfn fórnarlamba.


Opinber tala hinna myrtu verður líklega aldrei vituð þar sem flest líkin finnast ekki.

Hvíti krossinn sem sést frá flugbraut Madrídflugvallar markar stað fjöldamorðanna. Það sem ekki sést frá flugbrautinni er Cementerio de los Mártires við rætur hæðarinnar við Paracuellos borgarastríðskirkjugarðinn. – Sex hundruð krossar marka grafir líkanna sem fundust og eru til minningar um hina miklu fleiri – þá sem ekki er vitað um hvar eru niðurkomnir.

Sjá upprunagrein hér að neðan :
https://www.eyeonspain.com/blogs/iwonderwhy/21832/paracuellos—the-airport-cross.aspx

Þýtt, endursagt og staðfært :

Már Elíson
Öryggis -og þjónustufulltrúi FHS á Spáni – www.fhs.is

Deila: