Rafræn félagsskírteini 2026
Ágætu félagar,
Stjórn Félags húseigenda á Spáni samþykkti nýverið að gefa út rafræn félagsskírteini í samstarfi við Lykilkort með einfaldara sniði en áður. Þau eru gefin út fyrir Apple og Google veskin sem njóta æ meiri vinsælda enda mun öruggari en sjálf kortin sem bankarnir gefa út. Við hvetjum þig til að opna netpóstinn og flytja skírteinið í rafræna veskið þitt hvort sem þitt veski er frá Apple eða Google.
Kveðja,
Stjórnin FHS
