Auglýsum eftir öryggis & þjónustufulltrúa
Félags húseigenda á Spáni (FHS) auglýsir eftir öryggis-& þjónustufulltrúa FHS á Spáni frá og með 1. maí 2018
Helstu verkefni eru:
- Sólahringsþjónusta í neyðartilfellum
- Símaþjónusta við félagsmenn
- Túlkaþjónusta gegn greiðslu félagsmanna
- Ýmis konar aðstoð við félagsmenn gegn greiðslu
- Samstarfs við stjórn FHS m.a. í „Öryggisneti FHS“
- Setur inn fréttir, upplýsingar og annað efni á vefsvæði FHS
Umsækjandi hér eftir nefndur fulltrúi þarf að vera gæddur eftirfarandi hæfileikum:
- Hafa gott vald á spænsku og ensku
- Vera þjónustulipur og samvinnufús
- Vera sjálfstæður og hafa frumkvæði
- Hafa þokkalega tölvuþekkingu og geta skráð fréttir á heimasíðu & facebook síðu félagsins
Áhugasamir sendi umsókn á formann stjórnar Víðir Aðalsteinsson á netfangið fh******@gm***.com
Umsóknarfrestur er til 01.04.2017.
Fullum trúnaði er heitið og öllum umsóknum svarað fyrir 15.04.2017
F.h. stjórnar
Víðir Aðalsteinsson