Íslendingapartý á Spáni.

Tilvitnun í Facebook færslu Elvers Mássonar.

Jæja, þá má ég loksins staðfesta að

ÍSLENDINGAPARTÝ

verður sannarlega haldið. Íslendingum gefst tækifæri til að skemmta sér og syngja saman í sól og sumaryl. Þeim sem komast ekki leiðar sinnar býðst akstur fram og tilbaka. Miðað verður við Ca 10 kílómetra radíus (til Pilar de la Horadada, rútustöð Torrevieja og San Miguel De Salinas, sem dæmi). Það sem hefur breyst er tímaramminn. Töframaðurinn Graeme Mykal

töfrar gesti upp úr skónum frá kl. 15:00 🕒 🃏 Tónlistaratriði úr öllum áttum – íslensk og erlend tónlist í bland – hefjast kl. 17:00 🕔 og eru þau eftirfarandi (í engri sérstakri röð);

Már Elíson syngur við undirleik 🎙🎹
Sigurdur Jonsson Perez mætir með saxófóninn 🎷dúettinn NO LIMIT slær svo lokatóninn🎙🎤🎹
Ég sjálfur lauma einhverjum lögum inn á milli 🤫🎹🎙Íslensk tónlist verður í hávegum höfð. Happdrætti verður í allan dag.
Í verðlaun eru; 50 Evru gjafabréf frá Alcampo, skreyttar vínflöskur og alls kyns glaðningur frá Cafetería Concierto sem er staðsettur á Polígono C-2 P Flamenca Sur, 1D, 03189 Orihuela.

Á meðan á þessu stendur drekka börnin frítt, í boði Félag húseigenda á Spáni

Við hlökkum til að sjá ykkur !!! 🤗😁🇮🇸🇪🇸

Deila: