Íslendingar á leið til Spánar á COVID tímum

Ágætu FHS félagar

 

Margar spurningar hafa vaknað hjá Íslendingum sem eru, eða hafa hugsað sér að fara til Spánar nú á haustdögum, og hef ég tekið saman það helsta, – spurt og svarað víða af Facebook

og fært í stílinn.

 

Leiðbeiningar / upplýsingar um hvernig bera skuli sig að við bókun til Spánar og hvaða gögn fólk þarf að hafa meðferðis miðað við núverandi reglur um Covid 19 veiruna, – t.d. ef flogið er í gegn um London Luton flugvöll.

 

Maska/grímu þarf að hafa í flugi og á flugvelli – nema neytt sé matar eða drykkjar, sem eru af skornum skammti um borð amk. hjá EasyJet. – Margir veitingastaðir og verslanir eru opnir/opnir á Luton flugvelli. –

 

Í EasyJet eru allir með ákveðin sæti fyrirfram. – Skylda er að hafa grímu.  –  Einhver matur og drykkur er til sölu á báðum leiðum. –

 

ATHUGA VEL :

 

Nauðsynlegt er að fylla út form á https://www.spth.gob.es áður en komið er til Spánar.

Fylla það út, prenta það út heima og sýna við komuna til Spánar. – Þá gengur allt auðveldar fyrir sig.

www.spth.gob.es 

Spain Travel Health

 

Nóg er í flestum tilvikum að fylla út á vefnum og prenta út en svo má nota OR-kóða og sýna við komu til Spánar. –

 

Ekki þarf að fylla út neitt /neina pappíra þegar þú ferð í milli/tengiflug (transit) í London – þ.e.a.s ef þú yfirgefur ekki flugvöllinn í millitíðinni. –

 

Það þarf að hlaða niður spth.es appinu ef þetta er gert í gegnum símann.

QR kóðinni er síðan sendur með e-maili þegar búið er að svara spurningunum.

QR kóðinn er skannaður á „Barcode“ sem margir eru nú þegar búnir að sækja og setja í síma sína

og hægt að sækja á „Google Play“.

 

Á þessari síðu má finna allar upplýsingar og sem er uppfærð reglulega :

https://visas-immigration.service.gov.uk/public-health-passenger-locator-form?fbclid=IwAR10LmMFWp3KMP4PBpxuWl9CbA04Aj3OAXejP1JbjB5VfwHdy2Et89D9CJM

VISAS-IMMIGRATION.SERVICE.GOV.UK – Public Health Passenger Locator Form

 

 

Már Elison

Öryggis -og þjónustufulltrúi

FHS á Spáni.

Deila: