Nýjasta nýtt
Félagsskirteini 2018
Við þökkum viðbrögð við greiðsluseðlum. Þegar þetta er skrifað hafa 213 félagar nú greitt félagsgjald fyrir 2018. Í vikunni kom í ljós við samlestur á gögnum að 90 félagar höfðu ekki fengið greiðsluseðil og hefur nú verið bætt úr því og greiðsluseðlar vonandi komnir í heimabanka hjá þessum félögum sem ekki fengu seðla í tíma. …
Ferða & heimilistryggingar
Að gefnu tilefni viljum við benda félagsmönnum á að kynna sér gildistíma ferðatrygginga í kortum og heimilistryggingum. Í flestum tilfellum er gidistími frá 60-90 dagar sem er of stuttur tími fyrir þá sem dvelja langtímum erlendis. Hægt er að kaupa viðtækari ferðatryggingu af tryggingafélögum hér heima. Ath, þessar upplýsingar fara jafnframt inná síðuna Öryggisnetið
Framboð til stjórnar FHS
Góðir félagar Við auglýsum eftir framboðum til setu í stjórn FHS. Aðalfundur FHS verður 10. febrúar og haldinn í Agóges salnum Lágmúla 4 108 Reykjavík og verður hann nánar auglýstur síðar.
Aðalfundur FHS
Aðalfundur FHS verður haldin í Agóges sal Lágmúla 4 3. hæð, 108 Reykjavík laugardaginn 10. febrúar og hefst hann klukkan 13:00 Dagskrá fundar: Kosning fundarstjóra og fundarritara Skýrsla stjórnar Lagðir fram endurskoðaðir ársreikningar félagsins Umræður um skýrslu stjórnar og ársreikninga Kosning formanns Kosning fjögurra manna í aðalstjórn Kosning tveggja manna í varastjórn Kosning tveggja skoðunarmanna…
Grísaveisla FHS
Nú er komið að hinni árlegu FHS hátíð verður hún haldin þann 10.febrúar næstkomandi. Við verðum á sama stað og í fyrra eða í sal Akóges í Lágmúla 4, 3 hæð. Sjá heimasíðu Akóges hér Miðaverð er 6.500 og hægt að greiða með korti eða peningum í salnum. Kristjana tekur við pöntunum á netfangið jo*******@***il.com eða í síma 8469989. Skemmtinefnd…
Grísaveisla FHS 2018
Kæru FHS félagar Laugardaginn 10,febrúar 2018 stendur Félag Húseiganda á Spáni fyrir Grísaveislu í hinum glæsilega sal Akóges í Lágmúla 4 108 Reykjavík ,3 hæð og hefst veislan kl 19:00 með fordrykk.

